Nú á síðast liðinn föstudag var hinn árlegi peysufatadagur
Kvennó og skemmti ég mér konunglega, það var dansað og sungið að
all íslenskum sið og síðan um kvöldið var borðað og djammað saman
að en íslenskari sið. Eftir partý með kvennó liði var kíkt í bæinn
og meðal annars kíkt á prikið og þar sáttu all nokkrir
kvennskælingar að drykkju. Hægt er að kíkja á myndir frá deginum og
kveldinu hér til hliðar.
Að öðru þá er ég búin að vera mjög dugleg að teikna upp á
síðkastið og endilega kíkjið á eitthvað af því ( til hægri í "dót
eftir mig" ), hef líka verið að semja eitthvað og hér er eitt
stykki:
Rauðhetta, skógarhöggsmaðurinn og herbegið
sem snérist
Ég ligg og læt mig dreyma um brosið
Ég stari inn í glas og horfi á vatnið stara til baka með
augum mínum
Hvernig ég komst hingað hef ég ekki hugmynd um
Tréin gripu í mig í drauminnum og þú varst þar.
Stundum stend ég upp og snýst í hringi
Kjólinn minn er rifinn og andlitið rautt af blóði
Mikið er allt hringsnúið og herbegið snýst.
Ég finn hvernig andinn um mig læsist, lásinn lokast
Ertu kominn eða ertu bara spegilmynd í vatnsglasinu
mínu.
Herbegið mitt snýst og myndir renna saman, allt rennur
saman
Andlitið verður að klessu í augum annara og hárið svartur
skuggi
Afhverju snýst ég svona og finn hvergi frið, er ég ekki í
lagi eins og þið hinn
Ég bý í herbegi sem snýst, þú villt ekkert snúast með
mér
En hopar í kringum sjálfan þig
Greiddu úr flækjunni
Mikið er allt hringsnúið og herbegið heldur áfram að
snúast
Og spegilmyndinn í glasinu hverfur, hvert fórstu
Ég reyni að finna þig en sé ekkert út um gluggann,
Standa ofsjónir mínar úti og láta rigna
Ef þær eru mínar má ég ekki rífa þær og henda í hauginn með
hinum hugsunum mínum
Mikið er allt hringsnúið og herbegið snýst en
Og glasið dettur, nú mun ég ekki sjá þig aftur
Eða kannski varstu aldrei til heldur bara hluti af ímynduð
heimi mínum,
Andinn er að hverfa
Þú opnar lásinn og herbegið hættir að snúast…..
Hvert fórstu nú……
Gott lag: Tears In The Typing Pool - Broadcast